|
Dagsetning
28. janúar 2012
|
17.03.2008 18:14:29 / bollumamma
»
11.03.2008 21:26:43 / bollumamma
úfff ég skammast mín svo mikið, þess vegna hef ég ekkert bloggað  Ég s.s. fattaði af hverju ég átti svona erfitt í síðustu viku því að ég byrjaði á túr á laugardaginn síðasta og er búin að vera í sukkinu síðan  Ég reyndar ákvað að losa þetta bara úr kerfinu mínu, sukka í nokkra daga án samviskubits og taka svo í taumana og koma sterk til baka  Var alveg búin að búa mig undir að ég myndi falla en maður gefst ekki upp, vigtin fylgir mér ennþá hvert sem ég fer en ég þarf að koma grænmetinu inn og planið er að gera það á morgun bara smátt og smátt. Ég hef verið að fá svo vonda krampa í magann af grænmetinu..spurning hvort ég þurfi að vera duglegri að sjóða það eða eitthvað  Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég hef sagt á morgun oft og mörgum sinnum og ég er ekki að svíkja neinn nema sjálfa mig og mér finnst það framför að ég skilji það. Ég er að þessu bara fyrir mig og engan annan, þess vegna í fyrsta skiptið í mínum "megrunarferli" lýg ég ekki þegar ég svindla og á erfitt. Þetta er erfitt, meira að segja drulluerfitt en ég veit að ég get þetta alveg eins og allar hetjurnar sem ég fylgist með og virðast ekki eiga í neinum vandræðum með þetta allt saman. Maður þarf bara að brjótast úr viðjum vanans og vera sannur sjálfum sér, gera sér grein fyrir mistökum sínum og læra af þeim  Ætla að bíða með vigtunina þangað til á fimmtudaginn, gefa mér smá séns á að bæta mig  skrifa aftur þá
»
06.03.2008 19:18:06 / bollumamma
Jæja fór í vigtun áðan þó svo að ég vissi upp á mig sökina en ég fór og var stolt af mér að gera það en ég á það nefninlega til (eða átti það til fyrir nýja lífstílinn) að sleppa bara að mæta ef ég veit að ég er ekki að standa mig. Ég var búin að þyngjast um 100gr sem er svosem ekki mikið en ég lít bara á þetta sem wake up call. Ég ætla mér ekki að fara upp aftur, skal ná niður í næstu viku...þarf að fara að setja í gírinn til að ná fyrsta markmiðinu mínu  Það var brjálað að gera hjá mér í dag og ég bara hafði ekki tíma til að borða, borðaði ekkert fyrr en í kvöldmatnum úfff. EN á morgun stefni ég að 100% ddv degi og hlakka til  Takk fyrir allan stuðninginn stelpur og gangi ykkur vel, þið eruð svo góðar fyrirmyndir
»
03.03.2008 12:04:06 / bollumamma
Takk fyrir svörin stelpur, þið eruð yndislegar  Ég er búin að svindla smá en ekkert hrikalega, reyndar kem ekki grænmetinu ofan í mig því að það er svo vont að kyngja því...er með hrikalega hálsbólgu. En í dag er sukkið búið, maður stendur upp aftur þó maður falli  Verð reyndar að sleppa að borða harðan mat því að ég bara get ekki kyngt en held mér innan ddv marka í öllum öðrum mat þangað til að hálsinn skánar:  Fór bónus í gær og fyllti ísskápinn af girnilegum hollum mat, vatnsmelónu, vínberjum og gúrkum og gulrótum mmm dýrka ískápinn minn þegar hann er fullur af svona girnilegum mat  Verð sátt í vigtuninni ef ég stend í stað þar sem að síðastliðin vika hefur ekki verið góð en ég bæti það bara upp næst  Enn og aftur vil ég þakka ykkur stelpur, sem fylgist með mér. Ótrúlegur styrkur að eiga ykkur að og fá smá spark í rassinn og svona góð ráð, mér þykir ótrúlega vænt um það
»
01.03.2008 15:38:38 / bollumamma
ég veit ekki hvað ég á að gera við sjálfa mig, sonur minn er búinn að vera veikur í viku og núna er ég orðin hálf lasin og bara get ekki haldið mig við prógrammið. Ég hef enga lyst á grænmeti og já bara mat yfir höfuð en náði þó að borða brauðið og djúsinn í morgun og svo bjó ég til ommilettu í hádeginu en sleppti grænmetinu Ég hef ekki orku í að elda, sinnandi stráknum og vera svona slöpp sjálf og þegar ég er í þessu ástandi langar mig svo mikið í nammi og alla þá óhullustu sem lífið hefur uppá að bjóða Mig langar svo að standa mig, langar að breyta um lífstíl, langar ekki að vera svona feit, langar svo að geta keypt mér falleg föt, langar að geta hlakkað til að fara til sólarlanda en ekki kviðið fyrir að líta út eins og strandaður hvalur í bikiníi frá seglagerðinni En ég bara veit ekki hvernig ég á að komast í gegnum þessa næstu daga.....fékk mér t.d. kjúklingasalat á kfc í gær.......er það alveg hrikalegt no no? Æi sorry tuðið í mér, i'm having a bad day
»
27.02.2008 14:49:36 / bollumamma
Jæja gat stolist aðeins frá veika stráknum og fór í vigtun. Fór bara 600gr niður, hefði viljað sjá betri tölu en þar sem þessi vika var ekki nálægt 100% ddv þá er ég alveg sátt við þetta. Geri bara betur í þessari viku  Ég komst ekki á fundinn, verð að reyna að fara á fund í næstu viku! Mikið rosalega langar mig í nammi en samt ekki...var næstum búin að fá mér áðan (átti þá eftir að borða skyrið mitt) og ég sagði við sjálfa mig nei þú færð þér skyr og ef þig langar ennþá svona mikið í nammi í kvöld að þá máttu fá þér eina lúku. Veit nefninlega að þá fæ ég mér þetta ekki, er farin að borða alltaf ávextina mína á kvöldin og finnst það bara voða fínt  Jæja nú tekur maður bara á þessu, langar að fara að klára fyrsta markmiðið mitt.
»
26.02.2008 23:02:15 / bollumamma
ohh sonur minn er búinn að vera svo lasinn í dag að ég komst ekki í vigtunina og það sem verra er að ég borðaði kfc í kvöldmat   Ætlaði í fiskbúð en greyið var með alveg 40,5 stiga hita og bara grét ef ég stóð upp frá honum þannig að kallinn sótti mat.... Kemst vonandi í vigtun á morgun og krossa putta að svindlið eyðileggi ekki allt
»
26.02.2008 11:32:21 / bollumamma
»
24.02.2008 17:37:12 / bollumamma
Fékk að sofa út í dag, vaknaði ekki fyrr en hálf 2  hef ekki fengið að sofa svona vel út síðan ég var ólétt og þá svaf ég nú ekki vel hehe þannig að það má segja að ég sé mjög vel úthvíld  Þar sem að ég vaknaði svona seint þurfti é að sameina morgun og hádegismatinn og þetta var svo mikið að ég náði ekki að klára! Fékk mér eina pönnsu áðan  er hundfúl útí sjálfa mig en ég fékk mér samt bara eina og ekkert af hinu gúmmilaðinu sem var í boði hjá henni ömmu minni. Amma mín er svo dugleg að baka og er alltaf með nýbakaðar brúntertur og pönnsur og allskonar góðgæti og hún eiginlega skilur ekki nei þá heldur hún að mér þyki kökurnar hennar vondar og verður hálf sár þannig að þegar ég var búin að segja nei þrisvar að þá gafst ég upp og fékk mér eina pönnsu  Æi amma er svo góð en næst segi ég bara endalaust nei. Mér kvíður svo fyrir vigtuninni á þriðjudaginn, ætla að fara á fund og fá smá pepp  Ætla að taka mig í gegn á morgun, hef ekki náð að klára mjólkurskammtinn minn né vatnsskammtinn minn um helgina....svo erfitt með þennan mjólkurskammt því að það eina af mjólkurvörunum sem er stungið uppá í bæklingnum sem ég borða er mjólkin!!! En ég skal og get og mun ná markmiðinu mínu og næsta markmiði á eftir það osfrv
»
21.02.2008 23:27:12 / bollumamma
»
19.02.2008 22:13:36 / bollumamma
Jæja núna brosi ég bara allan hringinn, fór í vigtun áðan og heil 3 kíló farin eftir þessa viku þó að ég rakst á nokkra byrjendaerfiðleika  Vá ég var eins og hálfviti þarna, stóð á vigtinni með lokuð augun og svo sagði konan bara nei vá dugleg heil 3 kíló, glæsilegt hjá þér  úff ég er svo ánægð og þetta er svo hvetjandi því að mér fannst eða hélt eins og ekkert væri að gerast en svo bara búmm heil 3 kíló jeijjj Keypti mér fullt af svona essens dropum og íspinna, þannig að ég fer núna að prufa að búa til ýmislegt svona ddv vænt góðgæti! Öllum er velkomið að bæta mér á linkalistann, því að mér finnst það ótrúlega mikið aðhald og stuðningur að vita að einhverjir eru að fylgjast með mér
»
17.02.2008 22:30:13 / bollumamma
»
16.02.2008 14:12:39 / bollumamma
Mér er búið að ganga ágætlega, borða reyndar frekar einhæft en við hverju öðru er að búast þegar maður er svona matvandur eins og ég? Leið strax betur á 3 degi, auðvitað er mikil nammilöngun en ég er hætt að vera svona svöng  Þarf að kaupa mér málband svo að ég geti mælt ummálið á mér.... Kann rosalega lítið á þetta blogspot dót...sé svolítið eftir því að hafa farið hingað með bloggið mitt því að ég kann ekki að gera auka blaðsíður fyrir vigtina mína og markmið, ef einhver kann það þá þygg ég alla þá hjálp sem ég get fengið  Hlakka svo til að fara í vigtun, ætla rétt að vona að vigtin hafi farið eitthvað niður!! Endilega kvittið ef þið kíkið hérna, visst aðhald þegar maður veit að einhver skoðar síðuna  UPDATE: úbbs var að borða hádegismatinn og fattaði eftir á að ég er búin að borða einu eggi of mikið miðað við vikuskammtinn!!! Er þá allt ónýtt?
»
16.02.2008 14:10:49 / bollumamma
Mætti á fund í fyrradag, leist rosa vel á allt saman og borgaði 10 vikur fram í tímann. Fór á vigtina og varð ekkert smá hissa! Er s.s. 123,8 kg hélt að ég væri mikið þyngri, er þá búin að halda mér jafnþungri í 1 1/2 ár sem er ansi gott fyrir mig ehe  Fyrsti dagurinn var erfiður, get ekki logið því. Mældi allt ofan í mig og held að ég hafi náð alveg 100% dönskum degi. EN ég var svöng, ég var með hausverk og dauðlangaði í nammi og kók! Stóðst samt þennan dag án þess að svindla og var mjög ánægð með mig  Dagurinn í dag er búinn að vera skárri en mikið svakalega langar mig í nammi! og ég er svo þreytt....ætli það sé sykurþörfin? Gæti sko sofnað hvenar sem er og hvar sem er! Ætla að leyfa mér nammidag um helgina, hugsa að ég gefist fljótlega upp ef ég fæ ekki einn nammidag á viku en svo ef mig langar ekkert í nammi þá sleppi ég því auðvitað  EN ég get og skal og vil léttast og breyta um lífstíl! Mikið þykir mér samt erfitt að þurfa að borða allt þetta blessaða grænmeti úffffff ekkert smá mikið sko! Hlakka til að fara í vigtun í næstu viku, á nefninlega ekki vigt hérna heima þannig að ég get ekkert kíkt. Jæja mikið hlakkar mér til þegar þetta fer að verða auðveldara!
»
16.02.2008 14:10:03 / bollumamma
Í dag ákvað ég að taka skref í rétta átt og byrja á danska kúrnum. Þessi ákvörðun er stórt skref fyrir mig, er búin að vera að vinna í hugarfarsbreytingu í nokkra mánuði núna og held að ég sé bara tilbúin í þetta. Ég hef verið að fitna í 9 ár núna og hef aldrei verið feitari en í dag. Veit ekki nákvæma tölu en ég er amk 125kg!!! Er 25 ára gömul og þegar ég var 18 ára var ég 73 kg þannig að ég hef fitnað mjög mikið á ekki svo löngum tíma! Málið er að ég á 19 mánaða son, mig langar ekki að vera feit mamma sem hann þarf að skammast sín fyrir og er alltaf þreytt! Mig langar að geta farið í tívolí tæki með honum og fótbolta og allt bara. Börnin læra það sem fyrir þeim er haft og ég vil að hann læri að borða hollan og góðan mat en ekki endalausan skyndibitamat og sælgæti, svo ég tali ekki um kókið sem við drekkum hér á heimilinu! Ég er á fullu að kynna mér danska kúrinn, ætla á fund í þessari viku eða næstu og byrja þá  Núna er ég í undirbúningsvinnu. Markmið sem ég set mér... Komast í 2 stafa tölu fyrir tveggja ára afmælið hjá syni mínum! 30. Júní 2008... Ef ég næ því þá er það æðislegt, ef ég verð löngu komin með þetta markmið þá er það bara frábært og nýtt markmið verður sett þá en maður tekur bara babysteps. Þetta er lífstílsbreyting en ekki skyndikúr.
»
|
Talning
Fyrir 1446 dögum
Byrjaði ég á ddv
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 mars
Dagatal
| janúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | | 29 | 30 | 31 | | Fyrri | Næsti |
|